Erlent

Bað „vændiskonu“ að afsveina 14 ára son sinn

Breskur lögregluþjónn. Myndin er úr safni.
Breskur lögregluþjónn. Myndin er úr safni.
Faðir sem bað lögregluþjón sem dulbúin var sem vændiskona að afsveina fjórtán ára gamlan son sinn hefur verið dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn sem er frá Bulwell á Englandi er 42 ára gamall og gaf sig á tal við lögregluþjónin á Mapperley svæðinu en hann hélt að hún væri vændiskona. Hann viðurkenndi að hafa beðið konuna um að stunda kynlíf með barni.

Dómarinn sagði að maðurinn hefði ákveðnar skyldur gagnvart syni sínum sem fælust ekki í því að stunda kynlíf með vændiskonu en maðurinn var handtekinn þegar umrætt atvik kom upp.

Dómarinn sagaðist ekki senda föðurinn í fangelsi vegna þess hve góður faðir hann hefði verið fyrir umrætt atvik og teldi að hann myndi ekki skaða son sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×