Erlent

Fyrsta vinnudegi við Hubble lokið

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Geimfararnir að störfum við sjónaukann.
Geimfararnir að störfum við sjónaukann. MYND/NASA

Áhöfn geimskutlunnar Atlantis lauk í gærkvöldi fyrsta vinnudegi sínum við Hubble-sjónaukann og er verkefnið á áætlun. Tveir geimfarar fóru að sjónaukanum og skiptu um eina af myndavélum hans. Þeir lentu í smávægilegum vandræðum við að losa einn af boltunum sem halda myndavélinni en það tókst að lokum. Þar með lauk fyrstu geimgöngu af fimm í ellefu daga leiðangri Atlantis sem gert er ráð fyrir að snúi aftur til jarðar eftir viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×