Erlent

Dalai Lama veitt vegabréfsáritun í S-Afríku

Guðjón Helgason skrifar
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta.
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta. Mynd/AP
Ný ríkisstjórn Suður-Afríku hefur ákveðið að snúa ákvörðun fyrri stjórnar og veita Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, vegabréfsáritun. Hann getur því sótt friðarráðstefnu sem haldin verður í landinu á næsta ári. Dalai Lama kemur í heimsókn til Íslands í sumar.

Fyrri ríkisstjórn í Suður-Afríku setti í mars blátt bann við því að Dalai Lama, útlægur leiðtogi Tíbeta og friðarverðlaunahafi Nóbels, fengi vegabréfsáritun til Suður-Afríku. Þannig var honum ómögulegt að koma til landsins á næsta ári til að sækja friðarráðstefnu sem haldin verður í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem haldin er í Suður-Afríku 2010 en friðarverðlaunahöfum Nóbels er boðið.

Sú ástæða var gefin að heimsókn Dalai Lama myndi draga athyglina frá heimsmeistarakeppninni sem væri verið að halda í fyrsta sinn í álfunni.

Suður-Afríkumenn voru gagnrýndir harðlega fyrir þetta og sagðir hafa látið undan þrýstingi frá stjórnvöldum í Kína sem hafa skoðun á því hvert Dalai Lama fer og hverja hann hittir og andmæla harðlega í hvert sinn sem hann hittir þjóðarleiðtoga á ferðum sínum.

Desmond Tutu, erkibiskum í Suður-Afríku, og de Klerk, forseti Suður-Afríku á síðustu árum aðskilnaðarstefnunnar, sem báðir hafa fengið friðarverðlaun Nóbels, hótuðu báðir að sniðganga ráðstefnuna.

Í morgun var tilkynnt að ný ríkisstjórn Jacobs Zuma forseta hefði ógilt fyrri í ákvörðun. Dalai Lama fengi vegabréfsáritun. Þannig gæti hann komið til landsins hvenær sem hann vildi.

Dalai Lama kemur til Íslands í fyrsta sinn í byrjun næsta mánaðar.

Forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, gefst ekki kostur á að hitta hann þar sem forsetinn verður á Kýpur ásamt tæplega 200 íslenskum íþróttamönnum sem taka þátt í smáþjóðaleikunum sem eru haldnir þar.

Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hitti Dalai Lama meðan á heimsókn hans stendur. Kínverska sendiráðið hafi samband við utanríkisráðuneytið íslenska í febrúar þegar greint var fyrst frá því að Dalai Lama væri væntanlegur hingað til lands og kom á framfæri mótmælum kínverska yfirvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×