Erlent

Tugþúsundir á flótta í Pakistan

Frá norðvesturhluta Pakistans í gær.
Frá norðvesturhluta Pakistans í gær. Mynd/AP
Mörg þúsund almennir borgara flýðu átakasvæðið í norðvestur Pakistan í morgun þegar útgöngubanni var aflétt um tíma í Swatdal. Þar hafa stjórnarher Pakistans og Talíbanar háð blóðuga baráttu síðustu vikuna. Útgöngubanni var aflétt svo hægt væri að að forða borgurum frá átökum.

Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hafa um 830 þúsund manns flúið heimili sín í dalnum síðasta mánuðinn vegna stigmagnandi átaka. Talið er að 1,3 milljónir manna séu nú á vergangi í Pakistan vegna átaka.

Gilani forsætisráðherra Pakistans segir flóttamannavandann í landinu ekki hafa verið meiri síðan Indland og Pakistan voru skilin að í bóðugum bardögum 1947 þegar nýlendustjórn Breta leið undir lok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×