Erlent

Fljúgandi furðuhlutur yfir Bristol

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin er ekki af umræddum hlut en þessi sást yfir Bretlandi í fyrra.
Myndin er ekki af umræddum hlut en þessi sást yfir Bretlandi í fyrra.

Ekkert lát er á fljúgandi furðuhlutum yfir Bretlandi en þaðan hefur fjöldi tilkynninga um meint geimför borist síðustu misseri. Á sunnudaginn náði forritari í Bristol myndbandi af stórum gráleitum hlut sem flaug hljóðlaust yfir húsþökum í nágrenni við vinnustað hans. Hann segir útilokað að hann hafi verið einn um að sjá hlutinn sem hann sagði hafa verið mjög greinilegan. Maðurinn hljóp út á götu eftir að hafa tekið myndbandið en þá var hluturinn horfinn.

Myndbandið og frétt Telegraph má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×