Erlent

Rannsaka dauðsfall í húsbáti

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögreglan í Kaupmannahöfn rannsakar nú hvort 25 ára gamall Norðmaður, sem fannst látinn um borð í húsbáti við Suðurhöfnina, hafi látist af völdum höfuðhöggs sem hann fékk þegar þungu glasi var kastað í höfuð hans á skemmtistað í borginni á sunnudagsmorgun. Maðurinn fannst um borð í bátnum á þriðjudagskvöld og var dánarorsökin heilablæðing. Eins lýsir lögreglan eftir vitnum af atburðinum og vill gjarnan ná tali af þeim sem kastaði glasinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×