Byrjaður að dusta rykið 30. apríl 2009 04:30 „
Ég er sáttur við árangurinn sem við höfum náð, en þó ekki ánægður," sagði Barack Obama um fyrstu hundrað daga sína í starfi. Í gær voru liðnir hundrað dagar frá því hann tók við embætti forseta Bandaríkjanna við hátíðlega athöfn í Washington. Obama hefur ekki setið verkefnalaus þessa fyrstu daga, heldur þurft að glíma við erfiða efnahagskreppu og umdeilda arfleifð forvera síns á alþjóðavettvangi. „Við erum byrjuð að byggja okkur upp og dusta af okkur rykið," sagði Obama í gær í St. Louis, þar sem hann kom fram á fjölmennum fundi. „Við eigum margt eftir ógert," bætti hann þó við. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að Obama hafi ekki enn tekist að hrista af Bandaríkjunum slyðruorð fyrri stjórnar í mannréttindamálum. Stefna nýja forsetans einkennist fremur af loforðum um breytingar en raunverulegum aðgerðum. Þótt hann hafi til dæmis lofað lokun Guantanamo-búðanna og sagst hafa stöðvað notkun pyntinga hafi enn lítið gerst í málefnum fanganna á Kúbu. „Frá sjónarhóli fanganna hafa stjórnarskiptin nánast enga þýðingu haft," segir Rob Feer, einn af höfundum skýrslunnar. „Sumir þeirra hafa verið í haldi í sjö ár og þurfa hraða úrlausn sinna mála." Bandaríkjaforseti notaði hundrað daga áfangann meðal annars til að fagna öldungadeildarþingmanninum Arlen Specter, sem á þriðjudag skýrði frá því að hann væri genginn úr Repúblikanaflokknum og til liðs við demókrata. Demókratar eru þar með komnir með 59 þingsæti í öldungadeildinni, þar sem hundrað þingmenn eiga sæti. Þeir vonast enn fremur til þess að fá sextugasta sætið þegar loks fæst úr því skorið hver vann sigur í þingkosningunum í Minnesota í nóvember síðastliðnum. Þar er endurtalningu atkvæða enn ekki endanlega lokið. Daginn áður hafði öldungadeildin gefið samþykki sitt fyrir því að Kathleen Sebelius, ríkisstjóri í Kansas, yrði heilbrigðismálaráðherra í ríkisstjórn Obamas. Þar með er ríkisstjórnin loks fullskipuð, hundrað dögum frá því hún tók til starfa.- gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira