Elsta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. apríl 2009 08:30 Glampinn frá sprengingu sem varð fyrir 13 milljörðum ára. MYND/Harvard
Vísindamenn komu í síðustu viku auga á elsta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum. Hér er ekki átt við einhvern eldfornan öldung í Japan, þótt þeir séu margir í eldri kantinum þar, heldur hafa menn nú komið auga á stjörnu sem sprakk fyrir 13 milljörðum ára. Þetta kann að hljóma eins og þversögn enda stjörnufræðin í senn margbrotin fræðigrein og heillandi. Það sem gerðist var að gervitungl nam skæran bjarma af gammageislum sem stóð yfir í heilar tíu sekúndur á fimmtudaginn fyrir viku. Stjörnusjónaukar heimsins sneru sér allir sem einn að þessu fyrirbæri og menn ætluðu hreinlega ekki að trúa eigin augum. Dr. Edo Berger, stjörnufræðiprófessor við Harvard, sagði í samtali við CNN að eftir glampann hefðu menn beðið eftir innrauðu geisluninni sem jafnan kemur í kjölfar sprenginga í geimnum. „Hún kom aldrei," sagði Berger. Kannski engin furða því það sem við vorum loksins að sjá núna hérna á jörðinni var stjarna að springa skömmu eftir að alheimurinn varð til. Ja, skömmu, 600 milljónum ára eftir að hann varð til, réttara sagt, en hjá stjörnufræðingum er það bara eins og einn kaffitími. Stjarnan sem menn fengu þarna að sjá springa er talin hafa verið 30 til 100 sinnum stærri en sólin okkar svo ætla má að sprengingin hafi verið þokkaleg. Glampinn frá sprengingunni var hins vegar 13 milljarða ára á leið til jarðar svo hún hefur verið einhvern spöl frá okkur. Það verður þó að teljast merkileg tilviljun að eftir allt þetta ferðalag birtist glampinn hér einmitt á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar, 2009.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira