Seðlabanki Evrópu bakhjarl krónunnar 25. júlí 2009 07:00 Gylfi Magnússon
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir fjölmargar leiðir færar fyrir Seðlabanka Evrópu að aðstoða Seðlabanka Íslands í gjaldeyrismálum. „Það má í sjálfu sér ímynda sér margvíslegar leiðir til þess en þær myndu flestar fela í sér með einum eða öðrum hætti að evrópski seðlabankinn stuðlaði að virkum viðskiptum með krónur." Eftir að samþykkt var að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið sagði Gylfi Magnússon í viðtali við Fréttablaðið það vel koma til greina að ganga á fund Seðlabanka Evrópu strax í haust varðandi samstarf í gjaldeyrismálum. Hann segir að stofnun eins og Seðlabanki Evrópu hafi margvísleg tæki sem hann geti notað til að aðstoða Ísland og ekki sé endilega víst að það hafi mikinn fjárhagslegan kostnað í för með sér fyrir bankann. „Í þeirra tilfelli væri um að ræða kaup og sölur á krónum og evrum. Um leið og það yrði virkur markaður fyrir krónur og evrur með bakhjarl eins og evrópska seðlabankann þá væri björninn unninn hvað það varðar að gera markaðinn með krónur nothæfan á ný," segir Gylfi. „Aðalmálið er að markaðurinn verði dýpri og að sterkir aðilar standi á bak við kaup og sölutilboð á markaðnum." Gylfi segir að samstarf myndi auk þess flýta fyrir því að Ísland gæti afnumið gjaldeyrishöftin og uppfyllt að fullu skilyrði EES um frjálst fjármagnsflæði. Hann segir það vel hugsanlegt að samstarfið væri eitthvað í líkingu við gjaldeyrisprógramm Seðlabanka Evrópu sem kallast ERM II sem er undanfari þess að lönd geta tekið upp evruna. Það eigi þó eftir að semja um þessi málefni svo sem ákveðin vikmörk á gengi krónunnar og hvort bankinn kæmi til með að veita Seðlabanka Íslands lán eða einhverjar lánalínur. Gylfi segir það ef til vill ekki gott að fara að lýsa öllum óskum um samstarf á þessum tímapunkti áður en rætt er við bankann. Samkvæmt svari Seðlabanka Íslands við fyrirspurn Fréttablaðsins um hugsanlegt samstarf segir að væntanlega verði spurt um slíkt vegna umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. Engin sérstök breyting hafi orðið á starfsháttum bankans á þessu stigi en bendir þó á að stjórnendur bankans hitti forsvarsmenn annarra seðlabanka reglulega á fundum. bta@frettabladid.is
Mest lesið „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Sjá meira