Erlent

Vill stöðva vondar hjúkkur

Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.

Samtök sjúklinga í Bretlandi hafa opinberað sláandi skýrslu þar sem kemur í ljós að fjöldi sjúklinga hafa hlotið slæma meðferð hjá hjúkrunarfólki.

Skýrslan er unnin upp úr viðtölum við fjölda sjúklinga. Sumir þeirra lýsa því hvernig hjálparbjalla er tekin af þeim aðrir segja frá því hvernig þeir liggja hjálparlausir án mats og drykkjar í langan tíma.

Almenningi er ofboðið vegna skýrslunnar og þegar er hafin herferð gegn slæmri meðferð á sjúklingum.

Christine Beasley, yfirmaður hjúkrunarfræðinga hjá breska ríkinu, segir málið grafalvarlegt. Christine segir að stöðva þurfi vonda hjúkrunarfræðinga en þúsund dauðsföll á ári hverju má rekja til legusára sjúklinga. Auðveldlega hefði mátt koma í veg fyrir dauða þessa fólks að mati Christine.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×