Erlent

Þrennt skotið til bana í Noregi

Óli Tynes skrifar

Þrennt var í dag skotið til bana í smáeynni Nesöya rétt utan við Osló. Brú er frá fastalandinu yfir í Nesö og henni hefur nú verið lokað meðan sérsveit lögreglunnar rannsakar málið.

Norska ríkisútvarpið segir að tvær konur hafi fundist skotnar til bana og einn karlmaður.

Talið er að maðurinn hafi skotið konurnar og síðan sjálfan sig.

Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur. Hann mun vera á sextugsaldri og konurnar á svipuðu reki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×