Tamíltígrar segja leiðtoga sinn á lífi Guðjón Helgason skrifar 19. maí 2009 12:01
Tamíltígrar á Sri Lanka segja það alrangt að leiðtogi þeirra hafi fallið í bardögum við stjórnarher landsins um liðna helgi. Þvert á móti sé hann í felum á öruggum stað. Stjórnvöld á Sri Lanka standa hins vegar fast við fyrri yfirlýsingar um fall hans og birtu í morgun myndir í sjónvarpi sem eru sagðar sýna lík leiðtogans. Mahinda Rajapaksa, forseti Sri Lanka, kom síðan í þinghúsið í höfuðborginni Colombo í morgun þar sem hann lýsti formlega yfir sigri í 27 ára borgarastyrjöld í landinu. Tamílar hófu vopnaða uppreisn í landinu í júlí 1983 og kröfðust sjálfstæðs ríkis í norður- og austurhluta landsins. Þeir börðust af mikilli hörku og féllu tugþúsundir í átökum stjórnarhersins og uppreisnarmanna Tamíltígranna. Tígrarnir játuðu sig sigraða á sunnudaginn eftir harða orrustu á þrjú hundruð fermetra svæði þar sem síðasta vígi þeirra var. Tamílar um allan heim voru síðan slegnir þegar stjórnvöld á Sri Lanka greindu frá því í gær að Vellupillai Prabhakaran, stofnandi og leiðtogi Tamíltígranna, hefði fallið í átökunum ásamt syni sínum og arftaka og mörgum öðrum háttsettum foringjum samstakanna. Margir neituðu að trúa því að leiðtoginn væri fallinn og í morgun var því vísað á bug í yfirlýsingu frá alþjóðadeild tígranna. Þar sagði að leiðtoginn væri á lífi og í felum. Öryggi hans hefði verið tryggt og hann geti því áfram stýrt baráttu tígranna. Skömmu áður var greint frá því í ríkisfjölmiðlinum á Sri Lanka að lík Prabhakarans hefði fundist í morgun. Þegar voru birtar nærmyndir af líki sem stjórnarherinn segir af honum. Það var sagt gert til að kveða niður allar sögur um að hann væri enn á lífi. Þetta fæst ekki staðfest endanlega af óháðum fulltrúum eða vestrænum miðlum þar sem starfsemi hjálparsamtaka og erlendra fjölmiðla hefur verið mjög takmörkuð á ástakasvæðinu.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira