Erlent

Hugað að Hubble

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Atlantis leggur í hann frá Kennedy-höfða í gærkvöldi.
Atlantis leggur í hann frá Kennedy-höfða í gærkvöldi.

Geimskutlan Atlantis lagði af stað í síðasta viðhaldsleiðangur sinn að Hubble-stjörnusjónaukanum klukkan 18 í gærkvöldi. Í þessum 11 daga langa leiðangri er ætlunin að skipta um ýmsa hluti í sjónaukanum, þar á meðal rafhlöður og hitaeinangrun. Vonir standa til að þetta dugi Hubble, sem verið hefur á braut um jörðu síðan 1990, til að sinna hlutverki sínu fram til ársins 2014 en þá verður nýr sjónauki, kenndur við James Webb, sendur á sporbaug. Gert er ráð fyrir að Atlantis komi að Hubble á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×