Innlent

ASÍ: Stjórnvöld vanrækja skuldug heimili

Formaður ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson.
Formaður ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson.

Miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun síðdegis í dag þar sem hart er deilt á stjórnvöld vegna skulda heimilanna. Í ályktunni segir að þau úrræði sem þegar hafa litið dagsins ljós séu ónæg. Úrræði séu í raun ómarkviss og hafi skilað mjög takmörkuðum árangri.

Að mati ASÍ hefur vandi heimilanna ekki fengið mikla athygli stjórnvalda og telja þeir það með öllu óásættanlegt.

Í harðorðri ályktun ASÍ segir ennfremur að stjórnvöld verði að leita allra leiða til þess að leysa alvarlegan skuldavanda heimilanna. Þá lýsir ASÍ sig tilbúið til þess að taka þátt í þeirri vinnu.

Ályktunina má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Vandi heimilanna vex hröðum skrefum dag frá degi. Staða þeirra sem komin eru í greiðsluvanda fer stöðugt versnandi og þeim fjölgar hratt sem ekki sjá framá að geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar. Að óbreyttu mun ástandið aðeins versna næstu mánuði ekki síst í ljósi þess að á sama tíma og skuldir vaxa ört fer kaupmáttur minnkandi. Undanfarna mánuði hefur þessi aðkallandi vandi , sem snýr ekki síst að almennu launafólki í landinu, fengið litla athygli stjórnvalda. Það er með öllu ósættanlegt.

Fyrir liggur að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til af hálfu stjórnvalda og fjármálastofnana duga engan veginn til að mæta þeim vanda sem við blasir. Alþýðusambandið hefur margoft bent á að þær væru alltof seinvirkar, ómarkvissar og skiluðu mjög takmörkuðum árangri. ASÍ hefur ítrekað krafist úrbóta.

Ríkisstjórnin verður að bregðast strax við og koma með raunhæfar og virkar aðgerðir til að létta skulda- og greiðslubyrði heimilanna áður en fólk missir alla von um mannsæmandi afkomu á næstu árum. Alþýðusambandið leggur áherslu á að allar leiðir til lausnar fjárhagsvanda heimilanna verði skoðaðar og lýsir sig reiðubúið til að taka þátt í þeirri vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×