Innlent

Spretta í túnum góð þrátt fyrir þurrk

Búsældarlegt á suðurlandi Júlímánuður var hlýr og þurr um mestallt landið en mikil úrkoma í vor gerði það að verkum að ekki varð léleg spretta í túnum. 
fréttablaðið/GVA
Búsældarlegt á suðurlandi Júlímánuður var hlýr og þurr um mestallt landið en mikil úrkoma í vor gerði það að verkum að ekki varð léleg spretta í túnum. fréttablaðið/GVA

„Í rauninni má segja að þessi þurrkur hafi haft merkilega lítil áhrif því sprettan í túnunum er almennt mjög góð,“ segir Valdimar Guðjónsson, bóndi á Gaulverjabæ í Flóahreppi. Nýafstaðinn júlímánuður var óvenju þurr víða um vestan- og suðvestanvert landið. Fara þarf aftur til ársins 1889 til að finna jafn litla úrkomu í júlí, eftir því sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Að sögn Valdimars var sprettan komin vel af stað í byrjun júlímánaðar.

„Við fengum mikla úrkomu í vor þegar mesti sprettutíminn var og það bjargaði alveg málunum. Ég hefði ekki boðið í ástandið annars, því þetta var mjög lítil úrkoma sem við fengum í júlí. Núna nýtist döggin á næturnar til þess að þetta spretti.“

Júlímánuður var hlýr og þurr um mikinn hluta landsins. Meðal-hiti í Reykjavík var 12,8 stig, og er það 2,2 stigum yfir meðallagi. Mánuðurinn er í 3. til 4. sæti hlýrra júlímánaða frá því samfelldar mælingar hófust, en ívið hlýrra var árin 1991 og 2007 og jafnhlýtt í júlí árið 1936.

Meðalhitinn á Akureyri var 11,1 stig og er það 0,6 stigum yfir meðallagi.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×