Erlent

Fæddist háð heróíni - dó vegna brotinna rifbeina

Móðirinn sprautaði sig með Heróíni á meðgöngunni.
Móðirinn sprautaði sig með Heróíni á meðgöngunni.

Barn sem fæddist með heróínfíkn lét lífið á sjúkrahúsi í Englandi á dögunum eftir að í ljós kom að barnið var með þrettán brotin rifbein. Barnið hafði verið tekið af kynmóður þess og afhent fósturforeldrum.

Fósturforeldrarnir hafa ekki verið nefndir á nafn í breskum fjölmiðlum, þau eru eingöngu kölluð herra og frú A.

Barnið, sem var stúlka og hét Chelsey, var tekið af kynmóður sinni eftir fæðingu. Chelsey reyndist vera haldin heróín fíkn líkt og móðir hennar.

Það tók 34 daga að afeitra stúlkuna og svo var henni komið í hendur fósturforeldra af barnaverndaryfirvöldum.

54 dögum síðar dó Chelsey.

Þegar læknar könnuðu banamein hennar kom í ljós að hún var með þrettán brotin rifbein. Niðurstaða lækna var sú að brotin væru til kominn vegna þess að fullorðinn einstaklingur hefði kreist barnið mjög fast.

Fósturforeldrarnir fóru í gegnum 16 mánaða skoðun yfirvalda sem þau þurfu að ganga í gegnum til þess að fá barnið. Svo virðist sem þau hafi staðist þá skoðun.

Lögreglan rannsakar málið sem sakamál.

Alls hafa rúm ellefu þúsund börn fæðst í Bretlandi haldin vímuefnafíkn síðastliðinn áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×