Erlent

Sjálfsvíg aldrei fleiri í Japan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Tókýó, höfuðborg Japans.
Tókýó, höfuðborg Japans.

Sjálfsvígum fjölgar nú sem aldrei fyrr í Japan en rúmlega eitt hundrað manns styttu sér aldur þar í landi í apríl. Sjálfsmorðstíðni Japana hefur lengi verið ein sú hæsta í þróuðum löndum og mælist nú 24 tilfelli á hverja 100.000 íbúa landsins. Til samanburðar er þessi tala 11 í Bandaríkjunum. Skelfilegt efnahagsástand er auðvitað það sem fyrst og fremst ýtir undir sjálfsvíg í Japan en efnahagssamdráttur landsins nam fjórum prósentum á fyrsta fjórðungi þessa árs og hefur ekki verið svo mikill frá lokum síðari heimsstyrjaldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×