Innlent

Byggingaframkvæmdir á brunareitnum boðnar út á næstunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gert er ráð fyrir að útboð vegna framkvæmda á horninu á Austurstræti og Lækjargötu hefjist fljótlega. Mynd/ GVA.
Gert er ráð fyrir að útboð vegna framkvæmda á horninu á Austurstræti og Lækjargötu hefjist fljótlega. Mynd/ GVA.
Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdir á brunareitnum á horni Lækjargötu og Austurstræti verði boðnar út á allra næstu dögum, segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs.

„Þetta verður boðið út í nokkrum áföngum. Þetta eru dálítið margslungin verk. Það verður stór kjallari undir öllum reitnum og síðan er þetta endurgerð á húsinu Lækjargata 2. Þarna verður nýtt hús byggt að Austurstræti 22. Svo verður Nýja bíó endurbyggt í upprunalegri mynd," segir Óskar. Hann segir að það hús verði byggja á staðnum en hin húsin væri hugsanlega hægt að byggja annarsstaðar og flytja síðan á staðinn.

Óskar segir að borgin muni einsetja sér að selja þessar eignir þegar fram líða stundir. „En það er alveg samstaða um það í borgarstjórn að það fari betur á því að Reykjavíkurborg taki framkvæmdina í sínar hendur, klári skipulagið og byggi upp samkvæmt skipulaginu og selji síðan eignirnar til rekstrar," segir Óskar. Óskar segist búast við því að það verði heilmikið af auglýsingum í blöðunum um helgina þar sem auglýst verði eftir tilboðum í verkin. Búið sé að vinna alla undirbúningsvinnuna

Framkvæmdirnar á brunareitnum er hluti af þeim framkvæmdum sem fjármagnaðar eru með fimm milljarða króna lífeyrissjóðsláni sem borgarráð samþykkti í dag að yrði tekið. En Óskar nefnir enduruppbygging húsa á Laugavegi 4 og 6 sem annað dæmi. „Við setjum 100 milljónir í það á þessu ári. Það er verkefni sem við hugsum okkur að vinna samkvæmt svokölluðu Halland verkefni. Það er að fá fólk sem er á atvinnuleysisbótum, iðnaðarmenn og tæknimenn og þetta verði bæði vinna til að draga úr atvinnuleysi og endurmenntunarþáttur í þessu líka," segir Óskar. Markmiðið verði því að menn fái menntun og þekkingu og ákveðin réttindi i gömlu handverki og endurgerð gamalla húsa.






Tengdar fréttir

Borgarráð samþykkir 5 milljarða lífeyrissjóðslán

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um 5 milljarða króna lántöku til að fjármagna framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar á árinu 2009. Lánið er tekið með skuldabréfaútboði til 45 ára en nú þegar liggja fyrir skuldbindandi fyrirheit frá lífeyrissjóðum um kaup á 5 milljörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×