Ríkið vill skaðabætur frá útrásarvíkingum 26. ágúst 2009 06:15 Skaðabótamál Fordæmi eru fyrir því bæði erlendis og hérlendis að ríkið fari í skaðabótamál, þó óvenjulegt sé að svo stór atburðarás sé tekin fyrir með þessum hætti, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Fréttablaðið/GVA
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að hefja undirbúning að höfðun skaðabótamála gegn einstaklingum, félögum og fyrir-tækjum sem sýna má fram á að hafi valdið ríkinu og íslenskum almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum í aðdraganda bankahrunsins. „Það má segja að þetta sé bæði hluti af eðlilegri hagsmunagæslu fyrir hönd ríkisins og þjóðarbúsins, en líka hluti af því að réttlætið nái fram að ganga,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „Ég treysti því, hvað sem út úr þessu kemur, að það fullnægi betur réttlætiskennd manna að þessi þáttur sé skoðaður,“ segir Steingrímur. Hann segir ekki tímabært að nefna nöfn einstaklinga eða fyrirtækja sem verið sé að skoða. Ákveðið hefur verið að fela starfshópi sjálfstætt starfandi lögmanna að undirbúa skaðabótamálin. Verkefni hópsins verður meðal annars að athuga í hvaða tilvikum er líklegt að árangur náist með málshöfðun. Hópurinn mun einnig skilgreina einstök mál og velja þau sem líklegt er að geti haft hraðan framgang í dómskerfinu, og hafi fordæmisgildi fyrir önnur sambærileg mál. Skaðabótamál gegn einstaklingum og lögaðilum yrðu rekin sem einkamál, og kröfur ríkisins eingöngu þær að fá bætur fyrir tjón sem hlotist hefur af verkum þeirra sem verða fyrir slíkri málshöfðun, að því er segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Steingrímur segir skaðabótamál geta verið fljótvirkari en saksókn og refsing, sé því til að dreifa. Ekki hefur verið endanlega ákveðið hvort ríkið fer þessa leið, né hvort slík málshöfðun, ef af verður, yrði í höndum ríkislögmanns eða annarra. Starfshópur með fulltrúum fjögurra ráðuneyta mun stýra verkefninu og ráða tvo til þrjá lögfræðinga til að vinna að könnun og undirbúningi málshöfðunar. Þegar upplýsingar koma fram um atburðarás, tjón og tjónvald verður hægt að krefjast kyrrsetningar eigna hans og höfða svo mál í kjölfarið. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að sönnunarkröfur í skaðabótamálum séu öðruvísi en í opinberum sakamálum. Ef gögn sýni brotlega eða gáleysislega hegðun stefndu sem valdið hafi ríkinu eða almenningi tjóni sé hægt að krefjast skaðabóta án þess að tekin sé afstaða til þess hvort rétt sé að refsa viðkomandi fyrir athæfið. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Erlent Fleiri fréttir Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Sjá meira