Erlent

Kínverjar banna reykingar á sjúkrahúsum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Kínverjar hyggjast banna reykingar á öllum sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðistengdum mannvirkjum árið 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins þar í landi í dag. Kínverjar eru með mestu reykingaþjóðum heims enda stærstu sígarettuframleiðendur heims og þarlendar sígarettur mjög ódýrar. Meira en helmingur karlkyns lækna í Kína reykir og segir í tilkynningu ráðuneytisins að nú sé tímabært að hætta reykingum á heilbrigðisstofnunum. Bannið mun einnig ná til hersjúkrahúsa, en þar tíðkast að bjóða hátt settum gestum sígarettur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×