Ánægðastur með árangurinn í Tyrklandi 25. júní 2009 00:30 tyrkir Fjármálakerfið í Tyrklandi fór á hliðina um síðustu aldamót. Mats Josefsson vann að endurreisn þess. Fréttablaðið/ap „
Besti árangurinn sem ég hef séð var í Tyrklandi,“ segir Mats Josefsson spurður um notkun norræna módelsins í endurreisn bankakerfa í kjölfar efnahagshruns. Hann viðurkennir að þetta hafi komið honum á óvart. Efnahagslífið í Tyrklandi fór á hliðina um síðustu aldamót. Fyrir hrunið voru 72 bankar starfandi í landinu. Viðskiptahalli hefur aukist hratt. Þá var spillingin gríðarleg innan fjármálageirans enda jusu stjórnmálamenn fjármunum úr bönkum landsins til fyrirtækja og félaga sem þeim tengdust. Ekki bætti úr skák að líran, gjaldmiðill Tyrkja, var sett á flot um svipað leyti. Það jók mjög á efnahagsvandann og gerði hann illviðráðanlegri. Mats segir endurreisn fjármálalífsins í Tyrklandi hafa gengið mjög vel og hratt fyrir sig. Þá hafi flýtt fyrir endurreisninni að umskiptin voru gerð fyrir opnum tjöldum. „Stjórnvöld voru mjög dugleg við að upplýsa almenning um gang mála. Þau létu prenta upplýsingar á blöð fyrir alla hópa landsins. Sérstakir bæklingar voru fyrir þá sem kunnu ekki eða voru illa læsir og ítarlegri upplýsingar fyrir þá sem það kunnu. Það sem máli skipti var að stjórnvöld héldu landsmönnum upplýstum um gang mála. Það er nauðsynlegt að umræðan eigi sér stað á opinberum vettvangi. Sumir halda að vandamálin hreinlega hverfi ef þau eru ekki rædd. Það er ekki rétt,“ segir Mats Josefsson.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða ESB ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Sjá meira