Tryggingastofnun rukkar látinn föður útvarpsmanns Valur Grettisson skrifar 5. ágúst 2009 19:22 Tryggingastofnun. „
Mér finnst þetta óþægilegt og skammarlegt," segir útvarpsmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson en honum barst bréf frá Tryggingastofnun þar sem faðir hans er krafinn um endurgreiðslu á upp á tæpar 60 þúsund krónur. Faðir hans var 85 ára þegar hann lést í mars á síðasta ári. Því er Þorgeir undrandi enda hefur faðir hans verið látinn í eitt og hálft ár. Það var fyrir skömmu sem Tryggingastofnun gaf út tilkynningu um að 4,1 milljarður hafi verið ofgreiddur til lífeyrisþega árið 2008. Þeir sem fengu ofgreitt verða krafðir um endurgreiðslu en það eru um fimm þúsund bótaþegar. Heildarfjöldi lífeyrisþega eru tæplega 46 þúsund, þar af eru 30 þúsund ellilífeyrisþegar. Útvarpsmaðurinn Þorgeir vakti athygli á málinu í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann segist hafa fengið bréfið í síðustu viku og upphæðin sem Tryggingastofnun vilji fá frá látnum föður hans eru tæplega 60 þúsund krónur. Sjálfur segir hann að fleiri hafi hringt inn í kjölfarið og lýst sömu dapurlegu reynslunni. Því er ljóst, að mati Þorgeirs, að faðir hans sé ekki sá eini sem er rukkaður handan móðunnar miklu. Þorgeir segir að ekki sé búið að gera upp dánarbú föður hans að fullu. Faðir hans átti eignir og því er möguleiki á að afkomendur hans þurfi að greiða skuld föðursins gagnvart Tryggingastofnun. Þorgeir er undrandi yfir aðgangshörku Tryggingastofnunnar og segir að lokum: „Jafnvel látið fólk fær ekki að hvíla í friði út af tryggingunum."
Mest lesið „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Innlent Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Erlent Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Innlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent Fleiri fréttir „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Mótmæli, sviknir strandveiðimenn og hættulegar falsaðar töflur Von der Leyen segir aðildarumsókn Íslands enn gilda Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Strandveiðum er lokið í sumar Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent