Innlent

Tryggingastofnun rukkar látinn föður útvarpsmanns

Valur Grettisson skrifar
Tryggingastofnun.
Tryggingastofnun.

„Mér finnst þetta óþægilegt og skammarlegt," segir útvarpsmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson en honum barst bréf frá Tryggingastofnun þar sem faðir hans er krafinn um endurgreiðslu á upp á tæpar 60 þúsund krónur. Faðir hans var 85 ára þegar hann lést í mars á síðasta ári. Því er Þorgeir undrandi enda hefur faðir hans verið látinn í eitt og hálft ár.

Það var fyrir skömmu sem Tryggingastofnun gaf út tilkynningu um að 4,1 milljarður hafi verið ofgreiddur til lífeyrisþega árið 2008. Þeir sem fengu ofgreitt verða krafðir um endurgreiðslu en það eru um fimm þúsund bótaþegar.

Heildarfjöldi lífeyrisþega eru tæplega 46 þúsund, þar af eru 30 þúsund ellilífeyrisþegar.

Útvarpsmaðurinn Þorgeir vakti athygli á málinu í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann segist hafa fengið bréfið í síðustu viku og upphæðin sem Tryggingastofnun vilji fá frá látnum föður hans eru tæplega 60 þúsund krónur.

Sjálfur segir hann að fleiri hafi hringt inn í kjölfarið og lýst sömu dapurlegu reynslunni. Því er ljóst, að mati Þorgeirs, að faðir hans sé ekki sá eini sem er rukkaður handan móðunnar miklu.

Þorgeir segir að ekki sé búið að gera upp dánarbú föður hans að fullu. Faðir hans átti eignir og því er möguleiki á að afkomendur hans þurfi að greiða skuld föðursins gagnvart Tryggingastofnun.

Þorgeir er undrandi yfir aðgangshörku Tryggingastofnunnar og segir að lokum: „Jafnvel látið fólk fær ekki að hvíla í friði út af tryggingunum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×