Erlent

Sprengja sprakk á strandbar á Mallorca

Frá sprengingu á Mallorca í síðasta mánuði.
Frá sprengingu á Mallorca í síðasta mánuði. Mynd/ AP
Sprengja sprakk við strandbar á spænsku eyjunni Mallorca. Samkvæmt fjölmiðlum á Spáni var varað við sprenginunni með símtali. Ekki er vitað til þess að neinn hafi látist í sprengingunni.

Sprengingin átti sér stað í höfuðborg Mallorca, Palma - De - Mallorca. Á síðasta sunnudag viðurkenndu aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, að hafa staðið fyrir sprengingu á eynni í síðasta mánuði þar sem tveir borgaralegir löggæslumenn létu lífið.

Sprengjan sprakk inni á klósetti á bar sem heitir La Rigoletta. Samkvæmt spænska miðlinum El Mundo barst viðvörun í nafni ETA.

ETA samtökin hafa borið ábyrgð á yfir 820 dauðsföllum í baráttu sinni fyrir sjálfstæði Baskalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×