Byggingaframkvæmdir á brunareitnum boðnar út á næstunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. maí 2009 15:27 Gert er ráð fyrir að útboð vegna framkvæmda á horninu á Austurstræti og Lækjargötu hefjist fljótlega. Mynd/ GVA.
Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdir á brunareitnum á horni Lækjargötu og Austurstræti verði boðnar út á allra næstu dögum, segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs. „Þetta verður boðið út í nokkrum áföngum. Þetta eru dálítið margslungin verk. Það verður stór kjallari undir öllum reitnum og síðan er þetta endurgerð á húsinu Lækjargata 2. Þarna verður nýtt hús byggt að Austurstræti 22. Svo verður Nýja bíó endurbyggt í upprunalegri mynd," segir Óskar. Hann segir að það hús verði byggja á staðnum en hin húsin væri hugsanlega hægt að byggja annarsstaðar og flytja síðan á staðinn. Óskar segir að borgin muni einsetja sér að selja þessar eignir þegar fram líða stundir. „En það er alveg samstaða um það í borgarstjórn að það fari betur á því að Reykjavíkurborg taki framkvæmdina í sínar hendur, klári skipulagið og byggi upp samkvæmt skipulaginu og selji síðan eignirnar til rekstrar," segir Óskar. Óskar segist búast við því að það verði heilmikið af auglýsingum í blöðunum um helgina þar sem auglýst verði eftir tilboðum í verkin. Búið sé að vinna alla undirbúningsvinnuna Framkvæmdirnar á brunareitnum er hluti af þeim framkvæmdum sem fjármagnaðar eru með fimm milljarða króna lífeyrissjóðsláni sem borgarráð samþykkti í dag að yrði tekið. En Óskar nefnir enduruppbygging húsa á Laugavegi 4 og 6 sem annað dæmi. „Við setjum 100 milljónir í það á þessu ári. Það er verkefni sem við hugsum okkur að vinna samkvæmt svokölluðu Halland verkefni. Það er að fá fólk sem er á atvinnuleysisbótum, iðnaðarmenn og tæknimenn og þetta verði bæði vinna til að draga úr atvinnuleysi og endurmenntunarþáttur í þessu líka," segir Óskar. Markmiðið verði því að menn fái menntun og þekkingu og ákveðin réttindi i gömlu handverki og endurgerð gamalla húsa.
Tengdar fréttir Borgarráð samþykkir 5 milljarða lífeyrissjóðslán Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um 5 milljarða króna lántöku til að fjármagna framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar á árinu 2009. Lánið er tekið með skuldabréfaútboði til 45 ára en nú þegar liggja fyrir skuldbindandi fyrirheit frá lífeyrissjóðum um kaup á 5 milljörðum. 28. maí 2009 14:17 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira
Borgarráð samþykkir 5 milljarða lífeyrissjóðslán Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um 5 milljarða króna lántöku til að fjármagna framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar á árinu 2009. Lánið er tekið með skuldabréfaútboði til 45 ára en nú þegar liggja fyrir skuldbindandi fyrirheit frá lífeyrissjóðum um kaup á 5 milljörðum. 28. maí 2009 14:17