Risastórar virkjanir hrekja fólk úr landi 10. ágúst 2009 04:00 Í júní síðastliðnum fór þessi hópur Karena frá Búrma til Taílands. nordicphotos/AFP
Áform stjórnvalda í Búrma um að reisa tvær stórar stíflur ógna fólki af Karenþjóðinni, sem í meira en sex áratugi hefur barist fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis við landamæri Taílands. Jafnt mannréttindasamtök sem umhverfissamtök hvetja stjórnvöld í Taílandi, og reyndar einnig í Kína, til að hætta við þátttöku í þessum virkjanaframkvæmdum. Kínversk og taílensk fyrirtæki munu taka þátt í framkvæmdunum, en orkan verður að mestu seld til Taílands. Endanleg ákvörðun hefur þó ekki verið tekin, en búist er við að skrifstofa forsætisráðherra Taílands sendi frá sér skýrslu síðar í mánuðinum. Salvínfljót er 2.400 kílómetra langt og á upptök í Kína, þar sem það heitir Nú, en rennur síðan í gegnum Búrma, að hluta meðfram landamærunum að Taílandi. Stíflurnar tvær, Hatgyi og Tasang, eru á landssvæði þar sem Karenar búa. Tasang-virkjunin yrði ein sú stærsta í Suðaustur-Asíu, með framleiðslugetu upp á rúmlega sjö þúsund megavött, en Hatgyi-virkjunin á að geta framleitt 1.360 megavött. Árið 2007 var formlega hafist handa við Tasang-stífluna, en framkvæmdum var síðan frestað og hafa enn ekki hafist. „Bygging stíflnanna nú myndi valda gríðarlegu umhverfistjóni, auk þess sem Karenþjóðin færi á vergang,“ sagði David Tarckabaw, varaforseti Þjóðarbandalags Karena, stjórnmálaafls sem jafnframt rekur eigin uppreisnarher. „Þúsundir gætu flúið yfir til Taílands.“ Karenar eru rúmlega sjö milljón manna þjóð, sem hefur áratugum saman sætt ofsóknum af hálfu herforingjastjórnarinnar í Búrma. Stjórnin hefur eflt mjög herafla á svæðinu, einkum á stöðunum þar sem virkja á. Ásakanir hafa borist um að hermennirnir brjóti mannréttindi á íbúunum, meðal annars hafi hundruðum kvenna verið nauðgað í nágrenni hinnar fyrirhuguðu Tasang-stíflu. Um hálf milljón manna hefur þegar hrakist frá heimilum sínum á þessum slóðum, bæði vegna virkjanaáforma og vegna almennra átaka á svæðinu. Reglulega fara hópar fólks yfir landamærin til Taílands. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira