Milljón manna þurft að flýja heimili sín 10. ágúst 2009 03:00 taívan Sex hæða hótel varð rigningunni að bráð í Taívan um helgina. 300 manns voru á hótelinu en það var rýmt skömmu áður en það hrundi. Gríðarleg rigning og vindur var í landinu um helgina á meðan fellibylurinn Morakot reið þar yfir. fréttablaðið/ap
Um ein milljón manna hefur þurft að yfirgefa heimili sín í Kína vegna mikilla flóða af völdum fellibylsins Morakot. Áður hafði fellibylurinn riðið yfir Taívan og Filippseyjar. Einn hefur látið lífið í Kína. Tuga manna er saknað í Taívan og að minnsta kosti 21 hefur látið lífið á Filippseyjum, og sjö til viðbótar er saknað. Þrír evrópskir ferðamenn eru á meðal þeirra sem saknað er. Gífurleg flóð hafa orðið af völdum fellibylsins. Í Taívan eru flóðin þau verstu í fimmtíu ár og hefur úrkoman mælst 2000 millimetrar. Þar hrundi sex hæða hótel út í á vegna flóðanna, en búið var að rýma hótelið áður en það gerðist. 300 manns voru á hótelinu, sem var vinsælt meðal ferðamanna. Fellibylurinn gekk yfir á föstudag og laugardag. Sextán manns er saknað eftir að hús hrundi í flóði, þeirra á meðal voru tveir lögreglumenn sem voru að hjálpa fólki að komast út úr húsinu. Alls er 31 saknað þar í landi og þrjú dauðsföll hafa verið staðfest. Skólum hefur verið lokað og öllu flugi undanfarna daga hefur verið aflýst. Fellibylurinn kom á land á austurströnd Kína í gær og bar með sér gríðarmikla rigningu og vind sem náði yfir hundrað kílómetra hraða. Um 500 þúsund manns hafa verið fluttir frá Zheijiang-héraði og annar eins fjöldi frá Fujian-héraði. Að minnsta kosti einn er látinn. Lítill drengur lét lífið eftir að hús sem hann var í hrundi og hann grófst undir rústum þess. Fjórir aðrir fjölskyldumeðlimir lifðu af. Rúmlega 300 hús hafa hrunið vegna rigninganna. Lögreglumenn hafa farið um og dreift vatni og núðlum til þeirra íbúa sem eru fastir í húsum sínum vegna flóðanna. 48 þúsund bátar og skip hafa verið send í land og bæði flugferðum og strætóferðum hefur verið aflýst í héruðunum. Áhrifa fellibylsins gætir líka í Japan, en í suðurhluta landsins hefur verið mikil rigning og sterkur vindur. Eina röskunin sem fellibylurinn hefur valdið þar í landi er að flugi hefur verið aflýst. Morakot er langsterkasti fellibylur sem gengið hefur yfir á þessu ári á svæðinu, en þar eru fellibylir algengir. Fellibylurinn mun fara yfir Sjanghæ í dag og hefur verið gripið til mikilla varúðarráðstafana vegna þess. Búist er við því að fellibylurinn minnki frá og með deginum í dag. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira