Flóttafærin látin ónotuð 1. september 2009 04:30 Bjó í tjöldum og skúrum. Í stórum bakgarði mannræningjanna voru skúrar og tjöld í skjóli hárra trjáa.fréttablaðið/AP
Jaycee Lee Dugard hefði við ýmis tækifæri getað sagt til sín og sloppið úr prísund barnaræningjanna Phillips og Nancy Dugard, sem rændu henni árið 1991 þegar hún var ellefu ára gömul. „Hún ber sterkar tilfinningar til þessa manns. Henni finnst í raun og veru þetta vera nánast eins og hjónaband,“ segir stjúpfaðir hennar, Carl Probyn, sem á sínum tíma varð vitni að barnsráninu og var lengi síðan grunaður um aðild að verknaðinum. Tveimur dögum eftir að Jaycee losnaði úr prísundinni hitti hún móður sína og systur. Hún virðist vera við góða heilsu, en er sögð hafa samviskubit út af því að hafa myndað sterk tilfinningatengsl við ræningja sinn. Sérfræðingar segja ýmsar skýringar á því að fórnarlömb mannræningja notfæri sér ekki tækifæri sem bjóðist til þess að sleppa. Mannræninginn hafi fljótlega gert Dugard algerlega háða sér, og síðar meir hafi hún óttast um börn sín. Hún hafðist við í tjöldum og skúrum í stórum bakgarði þeirra hjóna, ásamt tveimur börnum sem hún eignaðist þegar hún var fjórtán og átján ára gömul. Faðirinn er Phillip Garrido, ræningi hennar og nauðgari. Viðskiptavinir prentþjónustufyrirtækis sem Garrido rak heima hjá sér segja að hún hafi tekið virkan þátt í fyrirtækinu, meðal annars hannað prentvörur og afgreitt pantanir. Fæstir nágranna þeirra minnast þess að hafa séð Jaycee, en margir höfðu þó orðið varir við tvær feimnar ungar stúlkur. Svo virðist sem nágrannarnir hafi forðast að eiga nokkur samskipti við íbúa hússins. Phillip Garrido var gjarnan kallaður „hinn óhugnanlegi Phil“, sennilega vegna þess að hann talaði mikið um að heyra raddir frá guði, auk þess sem sumir vissu að hann væri á skrá yfir kynferðisbrotamenn. Garrido var undir ströngu skilorðseftirliti, með tækjabúnað um ökklann svo hægt var að fylgjast með öllum hans ferðum. Engu að síður komst ekki upp um hann fyrr en öryggisverði við háskólabyggingu þótti hegðun hans undarleg, þar sem hann hugðist fara inn í bygginguna með dætur sínar tvær til að dreifa trúarbæklingum. Þegar vörðurinn komst að því að Garrido væri kynferðisbrotamaður hafði hann samband við lögreglu. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira