Dregið úr frumkvæðisvinnu lögreglu 29. júlí 2009 06:00 Innan úr lögreglubifreið. Mynd/Guðmundur Þ. Steinþórsson
Skortur á umferðareftirliti lögreglu getur haft slæm áhrif á íslenska umferðarmenningu, segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur. Hann segir skiljanlegt að frumkvæðisvinna lögreglu verði útundan í erfiðu árferði, en sú breyting verði að ganga til baka sem fyrst. Umtalsverð aukning hefur verið á afbrotum sem almenningur tilkynnir til lögreglu á síðustu árum, en á sama tíma fækkar brotum sem uppgötvast með frumkvæðisvinnu lögreglu, til dæmis með umferðareftirliti. Þetta má lesa úr samantekt Fréttablaðsins á upplýsingum um afbrotatíðni frá Ríkislögreglustjóra. Miðað er við samanlagðan fjölda afbrota á fyrstu sex mánuðum hvers árs til að tölurnar séu samanburðarhæfar við fyrstu sex mánuði ársins í ár. „Það getur verið áhyggjuefni ef umferðarlagabrotin eru látin sitja á hakanum, það skilar sér út í samfélagið þegar ökumenn átta sig á að lögreglan er ekki jafn mikið á vaktinni og hún hefur verið," segir Helgi. Slíkt tekur þó tíma, jafnvel nokkur ár, og því segir Helgi að vissu leyti skiljanlegt að lögreglan bregðist við þegar þröngt sé í búi með því að draga úr eftirliti með hraðakstri, ölvunarakstri og öðrum umferðarlagabrotum. Helgi segir fækkun á skráðum ölvunarakstursbrotum ekki vísbendingu um að ökumenn aki síður undir áhrifum. Þetta sé þvert á móti skýrt dæmi um að lögregla hafi ekki tíma og mannskap til að sinna eftirlitinu jafn vel og áður. „Þetta er dæmi um áherslubreytingu sem lögreglan verður að gera í ljósi aðstæðna," segir Helgi. Fækkun lögreglumanna og fjölgun verkefna hafi augljóslega áhrif. Þjófnuðum, innbrotum og eignaspjöllum hefur fjölgað á undanförnum árum. Það getur haft nokkurs konar samlegðaráhrif við fjárskortinn, og valdið því að lögregla hefur enn minni tíma til að sinna frumkvæðisvinnu, enda áhersla á að forgangsraða málum eftir mikilvægi. Fíkniefnabrotum hefur fækkað nokkuð og segir Helgi líklegt að ástæðan sé blanda af fjárskorti og því að stærri mál sem upp hafi komið taki tíma frá frumkvæðisvinnu. Einnig geti verið um áherslubreytingu að ræða hjá lögreglu, þannig að meiri áhersla sé lögð á að stöðva innflutning og dreifingu á fíkniefnum, en minni áhersla á að handtaka fíkniefnaneytendur, segir Helgi.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Sjá meira