Kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði Sigrúnar Pálínu Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 19. júní 2009 16:26
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði séra Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni á sínum tíma, kom á fund Kirkjuráðs í dag. Sigrún mætti á fund Kirkjuráðsins til þess að segja frá reynslu sinni af samskiptum hennar og Ólafs. Sigrún Pálína mætti á fund Kirkjuráðs ásamt eiginmanni, börnum sínum, vinahjónum og sr. Sigfinni Þorleifssyni, sjúkrahúspresti sem hefur haft milligöngu um ósk hennar um að koma á fund Kirkjuráðs. Sigrún Pálína taldi mikilvægt að hún fengi áheyrn hjá Kirkjuráði til að greina frá sárri reynslu er varðar meint alvarlegt siðferðisbrot sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hálfu sr. Ólafs Skúlasonar er hún leitaði til hans sem sóknarprests. Jafnframt vildi hún lýsa vonbrigðum með viðbrögð og tómlæti af hálfu kirkjunnar á sínum tíma. Lagði hún fram bréf dags. 19. júní 2009 orðum sínum til áréttingar og önnur gögn. Í bókun Kirkjuráðs kemur fram að kirkjuráð „harmar sársauka og vonbrigði sem fram komu í frásögn hennar á fundinum og skort á skilningi og máttleysi í viðbrögðum kirkjunnar á sínum tíma." Kirkjuráð hafi þó ekki vald til að leggja mat á eða úrskurða um framangreindar sakargiftir. Ákæra var ekki gefin út á sínum tíma og sr. Ólafur er nú látinn. „Kirkjuráð tekur undir orð biskups Íslands á prestastefnu 2009 og biður þær konur og börn sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið. Kirkjuráð vísar jafnframt til orða biskups á prestastefnu 2009 þar sem hann rekur það sem kirkjan hefur gert á umliðnum árum til að takast betur á við siðferðis- og kynferðisbrotamál." Á fundi samþykkti kirkjuráðið „ - að vinna að siðareglum fyrir presta og djákna og allt starfsfólk kirkjunnar sem byggi á núverandi siðareglum presta og öðrum siðareglum sem settar hafa verið í kirkjulegu starfi - að beita sér fyrir endurskoðun starfsreglna kirkjunnar um meðferð kynferðisbrotamála - að enginn geti verið í þjónustu Þjóðkirkjunnar sem gerst hafi sekur um kynferðisbrot - að leita allra annarra leiða til að kirkjan geti tekið á slíkum málum af festu með faglegum vinnubrögðum og fyrirbyggjandi aðgerðum svo og aukinni aðstoð við þau sem líða vegna slíkra mála og þau samtök sem starfa í þeirra þágu."
Tengdar fréttir Biskup tjáir sig ekki um mál Sigrúnar Pálínu Karl Sigurbjörnsson biskup ætlar ekki tjá sig að svo stöddu um mál Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur sem rætt var við í þættinum Sjálfstætt fólk í gær. 25. maí 2009 18:45 Kona sakar fyrrverandi biskup um kynferðislegt áreiti Kona sem var nemandi Ólafs heitins Skúlasonar fyrrverandi biskups segir hann hafa áreitt sig kynferðislega þegar hann kenndi við Réttarholtsskóla. Hún iðrast þess að hafa ekki sagt sögu sína fyrr en stígur nú fram til að styðja þær konur sem hafa verið í sömu sporum. 28. maí 2009 19:45 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira
Biskup tjáir sig ekki um mál Sigrúnar Pálínu Karl Sigurbjörnsson biskup ætlar ekki tjá sig að svo stöddu um mál Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur sem rætt var við í þættinum Sjálfstætt fólk í gær. 25. maí 2009 18:45
Kona sakar fyrrverandi biskup um kynferðislegt áreiti Kona sem var nemandi Ólafs heitins Skúlasonar fyrrverandi biskups segir hann hafa áreitt sig kynferðislega þegar hann kenndi við Réttarholtsskóla. Hún iðrast þess að hafa ekki sagt sögu sína fyrr en stígur nú fram til að styðja þær konur sem hafa verið í sömu sporum. 28. maí 2009 19:45