Erlent

Sýknaður eftir 22 ár á dauðadeild

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Paul House.
Paul House. MYND/CNN

Fangi, sem dvalið hefur á dauðadeild fangelsis í Tennessee í 22 ár, hefur verið sýknaður af morðákæru sem hann var dæmdur fyrir árið 1986. Maðurinn heitir Paul House og var honum borið á brýn að hafa nauðgað konu í bænum Luttrell og myrt hana árið 1985. Mál hans var tekið fyrir á ný árið 2006 þegar nýjar upplýsingar úr gömlum DNA-sýnum bentu til þess að blóð og sæði sem fannst á vettvangi væri alls ekki úr House. Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að vafinn nægði til sýknu og er House nú frjáls maður á ný eftir 22 ár í fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×