Sultarólin hert í sumarfríinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 13. maí 2009 07:35
Rúmlega helmingur Bandaríkjamanna hefur úr mun minna fé að moða í sumaleyfinu í ár en í fyrra. Það var ferðavefsetur America on Line sem tók sig til og kannaði stöðu bandarísks almennings með tilliti til yfirvofandi sumarfría ársins 2009 og satt best að segja hefur hún oft verið betri. Fimmtíu og fjögur prósent þeirra sem leitað var til segjast hafa mun minna fé milli handanna fyrir sumarfríið nú en í fyrra og heil 66 prósent ætla sér að ferðast innanlands í sumar. Síðarnefnda hlutfallið er reyndar óbreytt frá því í fyrra og vekur það nokkra furðu hjá America on Line þar sem dollarinn hefur sótt nokkuð í sig veðrið undanfarið og ætti samkvæmt því að ýta undir ferðalög erlendis. Menn eru þó heimakærir hvað sem því líður en hins vegar segist 61 prósent ætla að leita sérstaklega eftir afsláttum og tilboðum hjá ferðaþjónustuaðilum og 58 prósent munu sætta sig við að komast á áfangastað með fleiri en einu flugi reynist það ódýrara en beint flug. Það er sum sé haldið grimmt um budduna og auðvitað engin furða. Til dæmis er það nýlunda að yfir 40 prósent sumarferðalanga hyggist leggja greiðslukortinu og nota reiðufé í fríinu. Þetta er sparnaðaraðgerð en þátttakendur í könnuninni játa að auðvelt sé að rétta fram kortið og gráta seinna á meðan reiðufé gefi betri tilfinningu fyrir því hve miklu er eytt.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira