Erlent

Atlantis skaddaðist í flugtakinu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Geimskutlan Atlantis varð fyrir smávægilegu tjóni þegar henni var skotið á loft í fyrrakvöld. Svo virðist sem einangrun hafi losnað af eldsneytistanki og skollið á væng skutlunnar. Atvikið kann að minna marga óþægilega mikið á örlög geimskutlunnar Columbiu 1. febrúar 2003 en hún sundraðist þegar hún sneri á ný inn í lofthjúp jarðar eftir að bútur af einangrunarefni hafði skaddað skrokk hennar í flugtakinu. Talsmenn NASA segja skemmdirnar á Atlantis þó óverulegar og ekki tilefni til ótta um afdrif áhafnarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×