Erlent

Kínverskar pöndur með eftirskjálfta

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þessi virðist nú ekki stressaður.
Þessi virðist nú ekki stressaður. MYND/Getty Images

Stofn panda-bjarna í Sichuan-héraðinu í Kína hefur átt erfitt uppdráttar eftir jarðskjálftann mikla sem reið yfir héraðið 12. maí í fyrra. Skemmdir sem urðu á skóglendi, þar sem birnirnir hafast jafnan við, virðast hafa gert það að verkum að pöndunum líður nú ekki eins vel þar og áður og fæddust aðeins 13 húnar á svæðinu í fyrra. Árið fyrir skjálftann fæddust hins vegar 17 og 30 árið þar áður, sem var metár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×