Tollar á landbúnaðarvörur lækki 2. júlí 2009 02:30 Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir óhagstætt gengi krónunnar og ofurtolla skapa einokun í framleiðslu landbúnaðarvara.Fréttablaðið/Pjetur
Landbúnaðarráðuneytið hefur nú auglýst innflutningskvóta á landbúnaðarvörur eftir að Samtök verslunar og þjónustu mótmæltu ákvörðun ráðuneytisins frá 19. júní um að auglýsa ekki kvótana til umsóknar. Kvótarnir eru samkvæmt samningum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Tollar á kvótana eru nú með breyttu sniði en að sögn Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, breytir það litlu hvað varðar þá vöruflokka sem skipti mestu máli, eins og osta og kjúklinga. Hins vegar setji óhagstæð þróun á gengi krónunnar strik í reikninginn. „Stjórnvöld fara með þessa tolla í hæstu hæðir sem þau hafa heimild til og það mun sennilega enginn bjóða í þessa kvóta því það verður ekki hægt að bjóða vöruna á samkeppnishæfu verði,“ segir Andrés sem kveður bagalegt fyrir íslenska neytendur að Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra hafi þá yfirlýstu stefnu að gera allt sem hann geti til að koma í veg fyrir að hér verði innfluttar landbúnaðarvörur. „Þetta skapar einokun fyrir íslenska framleiðendur sem munu að óbreyttu sitja einir að þessum markaði. Það þýðir færri vörutegundir á óhagstæðara verði enda er það lögmál að einokun ýtir undir hærra verð. En stjórnvöld hafa í hendi sér að koma til móts við íslenska neytendur og lækka tolla á þessum vörum,“ segir Andrés Magnússon.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Sjá meira