Erlent

Norðmönnum barst sprengjuhótun í Kenía

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Norska sendiráðinu í Naírobí í Kenía barst í dag sprengjuhótun frá hreyfingu sem tengist al-Qaeda, eftir því sem kenískir fjölmiðlar greina frá. Hótunin barst með tölvupósti um miðjan daginn. Sendiráðsbyggingin var umsvifalaust rýmd ásamt sænsku sendiráðsbyggingunni sem er í næsta nágrenni við þá norsku. Tvö kenísk blöð fengu sömu skilaboð.

Norska utanríkisráðuneytið hefur aukið eftirlit við bygginguna og óljóst er hve lengi hún mun vera mannlaus. Einungis fáeinir dagar eru þangað til að Erik Solheim, norski umhverfisráðherrann, heldur til Kenía til að taka þátt í fundi með afrískum umhverfisráðherrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×