Framtíð Boston Globe óljós Atli Steinn Guðmundsson skrifar 4. maí 2009 08:27
Ekki er útilokað að dagblaðið Boston Globe hætti að koma út frá og með deginum í dag vegna fjárhagsvandræða. Fundarhöldum yfirmanna blaðsins með fyrirsvarsmönnum stéttarfélaga þeirra sem þar starfa lauk án endanlegrar niðurstöðu en móðurfélag Boston Globe, The New York Times Co., hafði veitt frest til miðnættis í gær til að ganga frá útfærslu 20 milljóna dollara niðurskurðar sem nauðsynlegur er til að halda blaðinu á floti. Boston Globe hefur mesta útbreiðslu dagblaða í þeim sex ríkjum í norðausturhorni Bandaríkjanna sem ganga undir heitinu Nýja-England og var stofnað af sex kaupsýslumönnum árið 1872. Útgáfufyrirtæki New York Times keypti blaðið árið 1993 en undanfarin misseri hefur hallað ört undan fæti hjá Boston Globe og náist ekki fyrrnefndur 20 milljóna dollara niðurskurður má ætla að dagar blaðsins séu taldir. Ljóst er að segja þarf upp fjölda manns sem í sumum tilfellum er hægara sagt en gert því nokkur þeirra stéttarfélaga sem koma að blaðinu hafa samið um æviráðningu síns fólks. Framtíð blaðsins skýrist væntanlega í dag eða á morgun.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira