Erlent

Herflutningavél skall niður á þorp á Jövu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Björgunarmenn við störf.
Björgunarmenn við störf.

Að minnsta kosti 97 manns eru látnir eftir að herflutningavél af gerðinni Hercules hrapaði á þorpið Karas á austurhluta indónesísku eyjarinnar Jövu í morgun. Tala látinni á líklega eftir að hækka þar sem 112 manns voru um borð í vélinni, 14 manna áhöfn og 98 farþegar, bæði hermenn og ættingjar þeirra. Vitað er um tvo sem létust á jörðu niðri en flugvélin jafnaði fjögur heimili í þorpinu við jörðu. Björgunarmenn eru á staðnum og vinna að því að bjarga slösuðum og slökkva elda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×