Erlent

Breskir kjarnorkukafbátar mígleka

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kafbáturinn Turbulent.
Kafbáturinn Turbulent. MYND/Telegraph

Geislavirk efni hafa lekið úr breskum kjarnorkukafbátum níu sinnum síðastliðin tólf ár. Þetta viðurkenndi varnarmálaráðuneyti landsins eftir að því barst fyrirspurn um málið frá Julian Lewis, skuggaráðherra varnarmála. Af þessum tólf tilfellum áttu þrjú sér stað í kafbátalægi konunglega sjóhersins í Faslane í Skotlandi. Alvarlegasta atvikið vart þegar kafbáturinn Trafalgar lak 231 lítra af geislavirkum kælivökva í ána Tamar í Devonport í nóvember síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×