Sjötíu manns hafa látist vegna svínaflensu í Mexíkó Guðjón Helgason skrifar 25. apríl 2009 12:16
Sérfræðingar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar eru búnir undir að þurfa að einangra með hraði hluta Mexíkó og Bandaríkjanna þar sem ný tegund svínaflensu hefur greinst í fólki. Talið er að flensan hafi dregið nærri sjötíu manns til bana í Mexíkó. Sérfræðingar segja um blöndu af svínaflensu, venjulegri inflúensu og afbrigði fuglaflensu sé að ræða en þessi samsetning hafi ekki sést fyrr. Um þúsund manns hafa greinst með þessa skæða flensu í Mexíkó sem yfirvöld þar segja að hafi líkast til dregið nærri sjötíu sjúklinga til dauða. Flestir hinna látnu munu ungt fólk en ekki ung börn og aldraðir líkt og oft þegar um flensu er að ræða. Átta hafa greinst í Kaliforníu og Texas í Bandaríkjunum en enginn látist þar. Verið er að kanna hvort nemendur í gagnfræðaskóla í Queens hverfinu í New York sem liggja nú veikir hafi sýkst af flensunni. Venjulega svínaflensa er öndunarfærasjúkdómur sem leggst á svín. Mannfók sýkist sjaldnast en þó munu dæmi um það en þá oftast ef fólk hefur komist í tæri við svín. Örfá dæmi eru um að sjúkdómurinn hafi smitast milli fólks. Þau tilfelli hafa verið rannsökuð sérstaklega af ótta yfirvalda um að til verði stofn af flensunni sem smitist auðveldlega milli fólks en það geti valdið útbreiddri farsótt eða jafnvel heimsfaraldri. Búið er að aflýsa opinberum viðburðum og fólk gengur um með skurðlækagrímur á götum Mexíkóborgar ef það þá þorir út meðal fólks. Jose Angel Cordova, heilbrigðisráðherra Mexíkó, hvatt í gær landa sína til að forðast fjölmenni og ganga áfram með grímurnar. Skólum hefur verið lokað og eins opinberum byggingum og stofnunum. Heilbrigðisstofnanir í Mexíkó og Bandaríkjunum rannsaka nú sjúkdóminn og reyna að hefta útbreiðslu hans. Ekki mun talið ástæða til að lýsa yfir að um farsótt eða faraldur sé að ræða en Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur skipað neyðarteymi vegna málsins og sent sérfræðinga á þau svæði þar sem sjúkdómurinn hefur greinst. Fulltrúar stofnunarinnar munu búnir undir að einangra hluta Mexíkó og Bandaríkjanna með hraði gerist þess þörf. Talsmaður Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar segir fulltrúa hennar hafa gríðarmiklar áhyggjur af málinu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira