Fæla unglinga frá skemmtigarði með hátíðnihljóði Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. maí 2009 08:30 Almenningsgarður í Tókýó.
Yfirvöld í Tókýó í Japan hafa tekið tæknina í sínar hendur til að koma í veg fyrir að unglingar vinni þar skemmdarverk um nætur. Þeir kalla gripinn moskítófluguna en þar er um að ræða tæki sem gefur frá sér hátíðnihljóð sem er gjörsamlega óbærilegt þeim sem það heyra. Hvernig stendur þá á því að það angrar ekki alla sem í garðinn koma um nætur? Ekki er að spyrja að því hve lunknir Japanar eru þegar kemur að hátæknimálum. Hljóðið sem moskítóflugan sendir frá sér er á tíðninni 17 kílóhertz. Hljóð á þeirri tíðni heyrir fólk upp að vissum aldri en eftir því sem árunum fjölgar glatar fólk hæfileikanum til að nema hljóð á vissum tíðnisviðum. Á því sviði liggur einmitt tíðnin 17 kílóhertz sem gerir það að verkum að börn og unglingar eingöngu greina hljóðið. Það truflar því ekki þá sem komnir eru til vits og ára en er afskaplega pirrandi í eyrum hinna yngri. Haruyuki Masuda, sem fer með stjórn almenningsgarða í Tókýó, segir að lítt hafi dugað að halda úti vaktmönnum í þessum tiltekna garði sem er stór og mikill og unglingar vinni að jafnaði skemmdarverk á mannvirkjum í garðinum sem kosti um milljón íslenskra króna ár hvert. Hljóðið er nú sent út í tilraunaskyni frá 11 á kvöldin til fjögur á morgnana og bíða menn spenntir eftir útkomunni.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira