Hálaunafólk þiggur bætur 30. júní 2009 06:00 Árni Páll Árnason
Dæmi eru um að hálaunafólk, sem vinnur minna en fulla vinnu vegna skerts starfshlutfalls, sæki um tekjutengdar atvinnuleysisbætur frá Atvinnuleysistryggingasjóði til viðbótar launum sínum. Enn sem komið er eru engin ákvæði sem kveða á um að laun fólks þurfi að vera undir ákveðnu marki til að það geti sótt um hlutabæturnar. Þetta segir segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Í nóvember síðastliðnum samþykkti Alþingi lagabreytingu sem veitir heimild til að greiða fólki í hlutastarfi tekjutengdar atvinnuleysisbætur í lengri tíma en áður. Hámarkshlutabætur vegna skerts starfshlutfalls eru 120.000 krónur á mánuði í hálft ár, sé miðað við að starfshlutfall bótaþega hafi verið minnkað úr 100 prósentum niður í 50 prósent. Lágmarks grunnatvinnuleysisbætur eru tæplega 150.000 krónur á mánuði. Munar því um 30.000 krónum á lágmarks grunnatvinnuleysisbótum og hámarksbótum vegna minnkaðs starfshlutfalls. „Ég get nefnt sem dæmi að einhverjir tugir manna, sem fóru úr einni milljón á mánuði fyrir fullt starf niður í hálfa milljón fyrir hálft starf, fá að auki greiddar 120.000 krónur á mánuði í hálft ár í bætur vegna skerts starfshlutfalls. Einhverjir myndu nú segja að það væri býsna rausnarlegt," segir Gissur. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir ætlunina með ákvæðinu um tekjutengdar atvinnuleysisbætur hafa verið að forðast atvinnuleysi. Kerfið sé í stöðugu endurmati og þess verði að gæta að úrræði af þessum toga séu ekki misnotuð. „Það þarf að passa upp á að í þessum tilfellum sé raunverulega verið að minnka starfshlutfall og afstýra þannig atvinnuleysi. Atvinnuleysistryggingasjóður á ekki að niðurgreiða óhjákvæmilegar launalækkanir fyrirtækja." Að sögn Árna er að óbreyttu reiknað með að Atvinnuleysistryggingasjóður tæmist um mánaðamótin október-nóvember. „Í samstarfi við Ríkisskattstjóra er verið að leggja grunn að sérstöku átaki, þar sem bæði verður tekið á svikum á atvinnuleysisbótum og svartri atvinnustarfsemi," segir Árni Páll Árnason.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Sjá meira