Flóttamenn handteknir við komuna til Íraks Guðjón Helgason skrifar 3. september 2009 12:50
Íraska lögreglan hefur handtekið fimm flóttamenn sem dönsk yfirvöld sendu heim til Íraks í gær. Sautján flóttamenn sem einnig var flogið með til Íraks munu á leið til norðurhluta landsins þar sem vinir og vandamenn eru sagðir bíða þeirra. Flogið var með hópinn, 21 karlmann og eina konu, frá Óðinsvéum í Danmörku til Bagdad í Írak í gærmorgun. Danska útvarpið hefur eftir einum úr hópi flóttamannanna að íraskir lögreglumenn hafi handtekið fimm úr hópnum á flugvellinum í írösku höfuðborginni eftir að danskir lögreglumenn sem fylgdu hópnum út voru farnir. Aðrir flóttamenn úr hópnum hafi síðan verið á flugvellinum í nótt. Þeir hafi ekki þorað þaðan af ótta við að öryggi þeirra væri ógnað. Fram kom á fréttavef danska útvarpsins í hádeginu að hópurinn væri nú lagður af stað til norðurhluta Íraks og það haft eftir talsmanni flóttamannahjálpar dönsku kirkjunnar. Þar bíði vinir og ættingjar fólksins sem ætli að hjálpa því eftir fremsta megni og veita því skjól. Flóttamannahjálpin danska hefur sagt að flestir flóttamenn úr hópnum séu í lífshættu í heimalandinu og eigi enga framtíð þar. Danska útvarpið hefur eftir fulltrúa dönsku ríkislögreglunnar að fleiri en tíu flóttamenn til viðbótar þeim sem sendir hafi verið heim bíði eftir að verða vísað frá Danmörku. Það byggir á samkomulagi danskra og íraskra stjórnvalda frá í vor um að Danir gætu sent aftur heim vel á þriðja hundrað Íraka sem hafi verið synjað um hæli í Danmörku. Talsmaður Asylret, sem eru samtök sem aðstoða flóttamenn í Danmörku, segir í viðtali við danska útvarpi að 90 flóttamenn frá Írak séu í felum í Danmörku. Ali Nayef er einn þeirra en hann bjó áður í Danmörku með íslenskri barnsmóður sinni. Hún er nú búsett á Íslandi með fjögurra ára syni þeirra. Ali Nayef hefur sagt í samtali við fréttastofu að hann vilji flytjast hingað. Ekki náðist í Ali Nayef í morgun.
Tengdar fréttir Hælisleitendurnir farnir til Bagdad Hælisleitendurnir frá Írak, sem handteknir voru í kirkju í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, voru í gær sendir með flugvél til Íraks. Óvissa er um örlög þeirra í heimalandinu, en dönsk stjórnvöld segjast hafa farið rétt að öllu. 3. september 2009 05:00 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
Hælisleitendurnir farnir til Bagdad Hælisleitendurnir frá Írak, sem handteknir voru í kirkju í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, voru í gær sendir með flugvél til Íraks. Óvissa er um örlög þeirra í heimalandinu, en dönsk stjórnvöld segjast hafa farið rétt að öllu. 3. september 2009 05:00