Verðandi varnarmálaráðherra Írans eftirlýstur fyrir sprengjuárás Guðjón Helgason skrifar 22. ágúst 2009 16:40 Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti.
Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, hefur útnefnt Ahmda Vahidi sem varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Írans. Þing landsins á eftir að staðfesta útnefningu Vahidi og tuttugu annarra ráðherra í ríkisstjórninni. Vahidi er eftirlýstur af alþjóðalögreglunni, Interpol, eftir að argentínsk stjórnvöld gáfu út handtökuskipun á hendur honum. Ráðherraefninu og fimm öðrum mönnum er gefið að sök að hafa skipulagt og framkvæmt sprengjuárás á samkomuhús gyðinga í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, árið 1994. Áttatíu og fimm féllu í árásinni. Árásin var sú versta á skotmark tengdu gyðingum utan Ísrael síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Vahidi, sem var aðstoðarvarnarmálaráðherra í ríkisstjórn Ahmadinejads á síðasta kjörtímabili, hefur verið á lista Interpol síðan í nóvember 2007. Saksóknari í Argentínu segir að tekist hafi að fá það staðfest að Vahidi hefði setið fund í Írak í ágúst 1993 þar sem ákveðið hafi verið að láta til skarar skríða. Argentínumenn og Ísraelar segja það áhyggjuefni að írönsk stjórnvöld hafi útnefnt Vahidi í embættið. Þetta sýni að ekki sé hægt að treysta Ahmadinejad Íransforseta. Ráðamenn í Teheran vísa gagnrýninni á bug, segja þetta samsæri síonista og spyrja af hverju málið hafi fyrst komist í hámæli nú. Vahidi hafi verið í áhrifastöðu í ríkisstjórn Írans í nokkur ár. Allt útlit sé fyrir að um nýtt bragð gegn sitjandi Íransforseta sé að ræða eftir umdeildar forsetakosningar og óeirðir í Íran í sumar.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira