Erlent

Verjandi óttast spaugsemi meints morðingja

Drew gerir grín.
Drew gerir grín.

Verjendur Drew Petersson hafa verulegar áhyggjur af spaugsemi hans. Drew hefur verið ákærður fyrir að myrða þriðju eiginkonu sína, Kathleen Savio árið 2004. Hann er sakaður um að hafa drekkt henni.

Málið komst ekki upp fyrr en á síðasta ári. Í upphafi var talið að Savio hefði látist af slysförum. Það var svo þegar fjórða eiginkona Drew hvarf sem lögreglumenn fóru að gruna að ekki væri allt með felldu.

Í ljós kom að Savio hefði verið drekkt. Drew var handtekinn í kjölfarið en málið vakti gríðarlega athygli í Bandaríkjunum því hann starfaði sem varðstjóri hjá lögreglunni í Seattle.

Drew hefur þótt gríðarlega fjölmiðlavænn eftir að hann var handtekinn. Til að mynda sýndi hann handjárnin og spurði blaðamenn hvernig þeim líkaði nýjasta glingrið sitt, eða „bling" eins og hann orðaði það á frummálinu.

Lögfræðingur hans, Roy Black hefur verulegar áhyggjur af þessari spaugsemi Drew. Og ekki af ástæðulausu.

Saksóknarinn í málinu, Marilyn Brenneman, hefur áður fengið mann sakfelldan fyrir morð, eingöngu með því að sýna upptöku af fréttafundi sem hann hélt í dómsal.

Sá maður hafði einnig verið sakaður um að myrða konuna sína.

Nú er svo komið að Roy hefur beðið skjólstæðing sinn um að sýna iðrun vilji hann eiga möguleika á því að verða sýknaður.

Réttað verður í málinu á næstu vikum en Drew hefur neitað öllum sökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×