NATÓ notar Eurovisionframlag Íslendinga Magnús Már Guðmundsson skrifar 7. júlí 2009 11:13
Eurovisionframlag Íslendinga þetta árið, Is it True, í flutningi Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur hljómar undir í kynningarmyndbandi á heimasíðu Atlantshafsbandalagsins, NATÓ, um áhrif fjármálakreppunnar á öryggismál. Fullyrt er að Íslendingar hafi ekki kært sig um að vinna keppnina í þetta sinn. Í myndbandinu er fjallað um afleiðingar kreppunnar á fólk víða um heim. Þar kemur til að mynda fram að mun fleiri reiði sig nú á erlenda hjálparaðstoð. Þá eigi öfgamenn mun auðveldara með að afla málstað sínum fylgis í efnahagslægð og kreppu. Meðal annars hafi hægriöfgaflokkum vaxið ásmegin í nýafstöðnum kosningum til Evrópuþingsins og þá óttist varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna uppgang samtaka ofstækismanna vegna ástands efnahagsmála. Í lok myndbandsins þegar tengsl Eurovisionlagsins við viðfangsefnið er útskýrð kemur fram að fjölmargir Íslendingar hafi þrátt fyrir að þykja lagið gott ekki viljað að Jóhanna Guðrún myndi sigra keppnina. Ástæðan mun vera sú að landsmenn hafi óttast mikil fjárútlát ríkisins við að halda keppnina að ári. Hægt er að horfa á kynningarmyndband Atlantshafsbandalagsins um afleiðingar fjármálakreppunnar á öryggismál hér.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Sjá meira