Erlent

Þúsundir minntust fyrrum forseta S-Kóreu

Tugir þúsunda komu saman á götum Seoul í dag og minntust Roh Moo-Hyun, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu, sem framdi sjálfsmorð fyrir rúmri viku. Forsetinn fyrrverandi var afar vel liðinn af fjölmörgum samlöndum sínum. Útför hans fór fram í dag og þar sagði Han Seung-soo, forsætisráðherra landsins, að Roh yrði meðal annars minnst fyrir að hafa barist fyrir mannréttindum og stéttlausu samfélagi.

Forsetinn fyrrverandi tók eigið lífið með því að stökkva fram af klettum skammt frá heimili sínu síðastliðin laugardag. Í bréfi sem hann skildi eftir sig bað Roh um að lík hans yrði brennt. Þar segir einnig að áframhaldandi líf hans yrði aðeins byrði fyrir aðra.

Roh lét af embætti forseta í febrúar á síðasta ári. Hann hefur síðan verið bendlaður við spillingar- og mútumál sem hann ítrekaði hafði vísað á bug og sagt koma frá pólitískum andstæðingum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×