Örlög týnda rússneska skipsins eru enn ráðgáta 14. ágúst 2009 05:15 Rússneska skipið Arctic Sea átti að flytja timburfarm frá Finnlandi til Alsír. Nordicphotos/AFP
Örlög rússneska flutningaskipsins Arctic Sea, sem hvarf á Ermarsundi fyrir rúmlega hálfum mánuði, eru enn hulin ráðgáta. Ekkert hefur spurst til skipsins síðan 28. júlí. Rússnesk herskip hafa gert mikla leit að skipinu og er rússneskum gervihnöttum beitt við þá leit. Ýmsar kenningar og vangaveltur um afdrif skipsins hafa komist á kreik. Ekki er vitað hvort það hafi í raun orðið sjóræningjum að bráð, heldur gæti eins verið að eigendur skipsins hafi látið sökkva því til að svíkja út tryggingafé. Heyrst hefur sú kenning að farmur skipsins hafi ekki verið timbur frá Finnlandi, eins og opinberar skýrslur segja, heldur eitthvað skuggalegra sem skýrt gæti hvarfið ef upp kæmist. Skipið er skráð á Möltu með fimmtán manna áhöfn. Siglingaeftirlitið á Möltu segir að ráðist hafi verið á skipið hinn 24. júlí þegar það var á ferð um Eystrasalt. Samkvæmt áhöfn skipsins réðust rúmlega tíu grímuklæddir menn um borð, bundu og börðu áhöfnina og spurðu út í fíkniefnasmygl. Tólf tímum síðar fóru þessir menn aftur frá borði og sigldu burt á hraðskreiðum gúmmíbát. Í viðtali við sænska dagblaðið Metro hinn 31. júlí er haft eftir manni, sem sagður er vera í áhöfn skipsins, að árásarmennirnir hafi verið í svörtum einkennisbúningum. „Þeir líktust bandarískum úrvalshermönnum og virtust mjög fagmannlegir. Þeir sögðust vera að leita að kókaíni, sem við áttum að hafa tekið um borð í Kaliníngrad. Þeir töluðu ensku með einhvers konar hreim.“ Skipið var í viðgerð í Kaliníngrad áður en það hélt til Finnlands að ná í timbur, sem flytja átti til Alsír. Síðast fréttist af skipinu, svo staðfest sé, á siglingu um Ermarsund hinn 28. júlí. Fréttir af ferðum þess eftir það eru óstaðfestar. Rússneskir fjölmiðlar segja skipið hafa sést á Biskajaflóa hinn 30. júlí og að síðar hafi einnig sést til þess úr portúgalskri eftirlitsflugvél. Joao Barbosa, talsmaður portúgalska sjóhersins, segir hins vegar að skipið hafi ekki komið inn í portúgalska landhelgi. Hafi skipið sokkið ætti mikið magn af timbri að hafa flotið upp og sjást á yfirborði sjávar. Ólíklegt þykir að sjóræningjar frá Sómalíu hafi skipið á valdi sínu.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fleiri fréttir Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Sjá meira