Dæmdur fyrir vörslu á tæplega 500 E-töflum 25. ágúst 2009 15:22 E-pillur
Maður var á föstudag dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir vörslu á 487 E-töflum. Dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi Norðulands. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir þjófnað á rakspíraog dömuilmvatni, sem og fyrir vörslu á lítilræði af hassi. Maðurinn játaði sök varðandi þjófnaðinn á rakspíranum og ilmvatninu, sem vörslu á hassi. Hann neitaði hinsvegar sök varðandi E-töflurnar. Það var móðursystir mannsins sem fann E-töflurnar að heimili sínu og afhenti þær lögreglu þann 27. desember á síðasta ári. Misræmi var milli framburðar mannsins hjá lögreglu og fyrir dómi. Hjá lögreglu sagðist maðurinn hafa keypt töflurnar af ónefndum manni skömmu fyrir jól, og greitt fyrir þær bíl og 200 þúsund krónur að auki. Hann hafi hinsvegar fengið bakþanka og reynt að láta viðskiptin ganga til baka, en sá sem seldi honum töflurnar hafi ekki svarað í símann. Hann hafi því falið töflurnar inni á baðherbergi móðursystur sinnar meðan hann færi norður til Akureyrar. Fyrir dómi sagði hann þennan framburð vera uppspuna. Fyrir dómi vildi maðurinn meina að annar aðili, sem hafi verið gestkomandi í húsi frænku hans ásamt fleira fólki, hefði falið töflurnar á staðnum en ekki sagt honum frá því fyrr en síðar. Hann hafi ætlað að sækja töflurnar en þar sem frænka hans hefði barið að baðherbergisdyrunum þegar hann mundaði pakkninguna með töflunum hafi hann þurft að fela þær inni á baði. Hann hafi ætlað að láta eiganda taflanna fá þær, en ekki komist inn í húsið til að sækja þær eftir að frænka hans var farin norður til Akureyrar. Í niðurstöðu dómsins þótti ekki sannað að ákærði hafi átt efnin sjálfur. Honum hafi hinsvegar verið kunnugt um þau og ekki gert neitt til að láta lögreglu vita. Maðurinn á langan sakaferil að baki og í ljósi þess var ekki unnt að binda dóminn skilorði.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira