LÍÚ fær 45 milljónir án þess að vilja þær 17. desember 2009 05:00 Hlutaskipti Landssamband útvegsmanna og Landssamband smábátaeigenda fá hlut af aflaverðmæti í landinu. Hlutur hvors sambands um sig nam meira en fjörutíu milljónum króna á síðasta ári.Fréttablaðið/GVA
Hluti af aflaverðmæti á Íslandsmiðum rennur til samtaka útgerða í landinu, samkvæmt 23ja ára gömlum lögum. Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Landssamband smábátaeigenda hafa hvort um sig liðlega fjörutíu milljónir í tekjur af þessu gjaldi á ári. LÍÚ vill að þessari gjaldtöku verði hætt en smábátasjómenn eru sáttir við fyrirkomulagið. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að LÍÚ vilji losna við þessar lögþvinguðu greiðslur og hafi þrívegis ályktað um það á aðalfundi en stjórnvöld hafi ekki tekið mark á þeim ályktunum. „Við teljum að þetta gjald sé barn síns tíma og að þessar tekjur eigi að koma með venjulegum félagsgjöldum,“ segir Friðrik. LÍÚ innheimtir líka um fimm milljónir króna á ári í félagsgjöld af þeim sem óska eftir inngöngu í samtökin. Landssamband smábátaeigenda hefur hins vegar ályktað til stuðnings þessu fyrirkomulagi á sínum aðalfundi. Gjaldið kemur í stað allra félagsgjalda um 1.300 smábátaeigenda. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að hins vegar vilji sambandið gera þær breytingar á lögum um verðjöfnun og greiðslumiðlun í sjávarútvegi að hætt verði að taka það gjald af aflaverðmæti sem látið er renna í lífeyrissjóði og til að greiða tryggingar fiskiskipa og -báta. Lögin fela hagsmunasamtökum útgerðanna umsýslu þeirra gjalda en mótframlag í lífeyrissjóð sjómanna er til dæmis greitt með þessu gjaldi af aflaverðmæti. Í samtali við Fréttablaðið voru talsmenn beggja samtakanna sammála um það fyrirkomulag. Örn lagði hins vegar áherslu á að þetta hefði reynst vel áður fyrr og meðal annars skilað hagkvæmum tryggingaiðgjöldum fyrir smábátasjómenn.peturg@frettabladid.is
Mest lesið Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Einn handtekinn eftir stunguárás Innlent Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Veður Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Sjá meira